Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir, María Egilsdóttir og Andrea Ýr Ásmundsdóttir og – 1. febrúar 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR., María Egilsdóttir og Andrea Ýr Ásmundsdóttir.

Hildur Kristín fæddist 1. febrúar 1992 og á því 30 ára stórafmæli í dag.

Hildur Kristín byrjaði að spila golf 15 ára og er því aðeins búin að spila golf í 15 ár. Hún var fljót að koma forgjöfinni niður í einsstafs töluog spilaði m.a. á Eimskipsmótaröðinni sumarið 2011 og 2012.

Hildur varð m.a. í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni; hún sigraði 1. flokk á meistaramóti GR, 2009 og sigraði bæði sveitakeppni 1. deildar kvenna kvenna og stúkna 18 ára og yngri 2010. Eins var hún í sveit GR kvenna, sem urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ, 2011.

Hildur Kristín er dóttir Ragnhildar Sigurðardóttur, GR, golfdrottningar og dótturdóttir Sigurðar dýralæknis Sigurðssonar, sem er úr hinum frábæra´ 61 árgangi úr MA. Eins á Hildur eina systur, Lilju.

María Egilsdóttir er fædd 1. febrúar 1997 og á því 25 ára stórafmæli.

Andrea Ýr Ásmundsdóttir er fædd 1. febrúar 2002 og fagnar því 20 ára stórafmæli. Hún er í GA.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Debbie Austin, 1. febrúar 1948 (74 ára) og Jimmy Lee Thorpe, 1. febrúar 1949 (73 ára); Vilhjalmur Hjalmarsson, 1. febrúar 1967 (55 ára). Annþór Kristján Karlsson, 1. febrúar 1976 (46 ára); Júlíus Freyr Valgeirsson, 1. febrúar 1978 (44 ára); Therese O´Hara, 1. febrúar 1988 (34 ára); Hildur Kristín Þorvarðardóttir, 1. febrúar 1992 (30 ára); María Egilsdóttir, 1. febrúar 1997 (25 ára); Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, 1. febrúar 2002 (20 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is