Afmæliskylfingur dagins: Perla Sól Sigurbrandsdóttir – 28. september 2021
Það er Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Perla Sól er fædd 28. september 2006 og á því 15 ára afmæli í dag. Hún varð m.a. Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri telpna á Íslandsbankamótaröðinni 2018 og spilaði þá á „Mótaröð þeirra bestu) (þá Eimskipsmótaröðinni, út í Eyjum, þar sem hún var yngsti keppandinn eða 11 ára. Perla Sól sagði í viðtali það ár, að það hafi verið bróðir hennar, Dagbjartur, sem hafi dregið sig í golfið.
Árið 2019, aðeins 12 ára varð Perla Sól Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í stelpuflokki og sigraði í öllum mótum Íslandsbankamótaraðarinnar. Jafnframt varð hún T-17 í Íslandsmótinu í höggleik í kvennaflokki – aðeins 12 ára!!! Stórglæsilegur árangur Perlu Sól!!!
Í ár 2021 er hún stigameistari í sínum aldursflokki. Frábær kylfingur þar sem Perla Sól er!!!
Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret „Wiffi“ Smith 28. september 1936 (85 ára); Ragnhildur Jónsdóttir, GK, 28. september 1940 (81 árs); Giuseppe Calì, 28. september 1952 (69 ára); Sigurjón Harðarson, 28. september 1952 (69 ára); Gustavo Rojas, 28. september 1967 (54 ára); Se Ri Pak, 28. september 1977 (44 árs);Kenneth Ferrie, 28. september 1978 (43 árs); Jean-Babtiste Gonnet, 28. september 1982 (39 ára); Jane Turner,28. september 1989 (32 ára) – skosk spilar á LET Access; ….. og ….. Óliver Leó Óliversson og Sandy Crutchfield Daly
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Aðalmyndagluggi: Afmæliskylfingur Golf1.is 28. september 2021, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR. Mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
