Jon Rahm leikmaður ársins hjá PGA of America
Spænski kylfingurinn Jon Rahm hlaut í fyrsta sinn heiðursviðurkenninguna PGA of America leikmaður ársins.
Jafnframt hlaut hann Vardon bikarinn, sem hefir verið veittur árlega frá 1937 fyrir lægsta leiðrétta meðaltalsskorið (ens. lowest adjusted scoring average).
Á sl. keppnistímabili, sem var óvenjulegt að því leyti að keppt var um sex risatitla, vegna tilfærslna frá árinu áður vegna Covid-faraldursins hlaut Rahm 75 „leikmaður ársins“ stig – fimm fleiri en Bryson DeChambeau.
Fyrir ári síðan varð Rahm í öðru sæti í keppninni um titilinn „PGA kylfingur ársins árið 2020″, á eftir Justin Thomas, og munaði 10 stigum á þeim.
Rahm, 26 ára sigraði aðeins einu sinni á keppnistímabilinu 2020-21, en í engu smámóti – hann náði að sigra á Opna bandaríska risamótinu, sem gefur 30 stig í keppninni um titilinn „PGA kylfingur ársins.“ í júní á Torrey Pines í San Diego.
Síðan fékk Rahm 20 stig fyrir að vera efstur á peningalistanum á keppnistímabilinu.
Hann skipti einnig 10 stigum með Kevin Na fyrir góða frammistöðu á nýloknu Tour Championship-móti.
DeChambeau varð í 2. sæti hlaut 70 stig í keppninni um titilinn„PGA leikmaður ársins, Patrick Cantlay fékk 60 stig og varð þriðji og Collin Morikawa 54 stig og varð í fjórða sæti.
Í Vardon Trophy keppninni var leiðrétti meðaltalshöggafjöldi Rahm 69.300 í 86 spiluðum hringjum. Dustin Johnson var í öðru sæti með 69,619, Louis Oosthuizen næstur með 69,714, DeChambeau 69,728 og Cantlay 69,736.
Vardon bikarinn er nefndur í höfuðið á goðsagnakennda breska kylfingnum Harry Vardon, og til að eiga möguleika á honum þarf að lágmarki að spila 60 hringi, án ófullkominna hringja, á viðburðum sem PGA mótaröðin stendur fyrir eða tilnefnir. Leiðrétta skorið er reiknað út úr meðalskori þáttakenda í hverju móti.
Síðan 1948 hefur PGA of America heiðrað bestu kylfinga mótarðarinnar með heiðurstitlinum „PGA kylfingur ársins“. Það er kynnt fyrir efsta atvinnumanninum á mótaröðinni byggt á stigakerfi fyrir sigur á mótum, opinberri stöðu hans á peningalistanum og meðaltalsskori. Hafist var handa að gefa stig fyrir tímabilið 2020-21 á A Military Tribute á Safeway Open 10. september 2020 og lauk sunnudaginn 5. september á TOUR Championship.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
