Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: seth@golf.is Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst varð T-61 á Sydbank Esbjerg Challenge
Fjórir íslenskir kylfingar tóku þátt í Sydbank Esbjerg Challenge, sem var mót vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu: Haraldur Franklín Magnús, Bjarki Pétursson, Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Mótið fór fram 17.-20. ágúst í Esbjerg Golfklub, Esbjerg, Danmörku.
Aðeins Guðmundur Ágúst náði að komst gegnum niðurskurðinn af íslensku kylfingunum og lauk hann keppni í gær.
Guðmundur Ágúst lék á 7 yfir pari, 291 höggi (74 69 75 73) og deildi 61. sæti með 2 öðrum kylfingum.
Sigurvegari mótsins var Norðmaðurinn Espen Kofstad eftir bráðabana við Skotann Ewan Ferguson. Þeir voru efstir og jafnir eftir hefðbundið 72 holu spil (báðir á 11 undir pari, 273 höggum) og varð því að útkljá hvor hlyti sigurinn á par-4 18. holu Esbjerg vallar, þar sem Kofstad vann á fugli.
Sjá má lokastöðuna á Sydbank Esbjerg Challenge með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
