Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: María Elana Astrologes Combs og Martin Quinney – 10. ágúst 2021

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir María Elana Astrologes Combs og Martin Quinney.

María Astrologes eins og hún hét þegar hún spilaði á LPGA, og áður en hún giftist 1979  er fædd 10. ágúst 1951 í Valparaiso, Indiana og á því 70 ára merkisafmæli í dag. Hún lék á LPGA á árunum 1972-1979. Hún sigraði í 1 móti á LPGA í umspili við ekki síðri kylfinga en Jo Anne Carner og Judy Rankin, þ.e. á Birmingham Classic, 4. maí 1975.

Martin Quinney er fæddur 10. ágúst 1971. Hann er frá Quesnel í Kanada og spilaði á kanadíska PGA.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gabrielle Keiller, f. 10. ágúst 1908 – d. 23. desember 1995; Galtarviti Keflavik (101 ára); [James] Kenneth Perry, 10. ágúst 1960 (61 árs); Ellý Steinsdóttir, 10. ágúst 1963 (58 ára); Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, 10. ágúst 1966 (55 ára) Lori Tatum, 10. ágúst 1967 (55 ára); Rifsnes Línubátur (53 ára);  Ingimar Waldorff, 10. ágúst 1974 (47 ára)…. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is