Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2021 | 10:06

WGC: DeChambeau áreittur á Fedex St. Jude Inv. og átti erfiðan dag

Bryson DeChambeau átti erfiðan lokahring á Fedex St. Jude heimsmótinu, lék á 74 höggum eftir að hafa spilað fyrri 3 keppnisdaga á 65 66 og 63.

Erfiðleikarnir mögnuðust vegna áhorfenda, sem áreittu hann stöðugt.  Og kannski hafði áreiti áhorfenda einmitt tilætluð áhrif; DeChambeau spilaði illa.

Í lokaumferðinni á WGC-FedEx St. Jude var DeChambeau áreittur af áhorfendum, sem hrópuðu stöðugt „Brooksy“ meðan hann spilaði.

Á 12. flöt sagði öryggisvörður að hann myndi fylgjast meira með þeim sem hrópuðu og áreittu, en svo virðist sem engum hafi verið vikið af vellinum.

DeChambeau vildi ekki tjá sig um atvikið eftir hringinn. Það gerði hins vegar sá sem var í ráshóp með honum, Harris English.

Harris English, sagði að það væri „óheppilegt“ að DeChambeau þyrfti að þola skítkastið.

Það er ekki sanngjarnt að þeir fái að kalla hann„ Brooksy“  sagði English.

Þetta er svolítið barnalegt og auðvitað heyrir hann hrópin og þau hafa smá áhrif á hann og honum líka þau ekki og ég held að það valdi því að þeir gera bara meira af þessu. Það er bara leiðinlegt að þeir (áhorfendur) séu að reyna að pirra fólk svona. Það er bara miður. „

Það sem múgurinn var að hrópa að DeChambeau „Brooksy!“ er tilvísun í deilur DeChambeau við Brooks Koepka. Á The Memorial í júní virtist Koepka jafnvel hvetja til truflandi hegðunar áhorfenda, jafnvel bjóða þeim áhorfendum bjór, sem það gerðu, en það gæti hafa valdið því að þeim væri hent út.

DeChambeau kaus, eins og áður sagði ekki að tjá sig við blaðamenn um atvikið, talaði aðeins við rétthafa mótaraðarinnar en það sem helst kom fram þar var að  DeChambeau lýsti engri eftirsjá yfir að missa af Ólympíuleikunum vegna jákvæðrar COVID-19 prófunar. Hann sagði að hann væri óbólusettur og myndi ekki láta bólasetja sig því bóluefni væri ekki fáanlegt í Bandaríkjunum, fullyrðing sem heilbrigðissérfræðingar draga í efa. Hann tjáði sig ekkert um „Brooksy“ lætin í áhorfendum og hvaða áhrif það hefði haft á hann.