Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 8. 2021 | 18:32

Íslandsmótið 2021: Hulda Clara og Aron Snær Íslandsmeistarar!!! Sögulegur tvöfaldur sigur GKG!!!

Íslandsmótið í golfi fór fram á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar, dagana 5.-8. ágúst.

Þetta var í 18. sinn sem Íslandsmótið fer fram á Jaðarsvelli. Golfsamband Íslands var framkvæmdaraðili mótsins í samvinnu við GA.

Keppt var um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki í 80. sinn og í 55. sinn í kvennaflokki.

Einnig var keppt um Björgvinsskálina í fyrsta sinn.

Hulda Clara Gestsdóttir, GKG og Aron Snær Júlíusson, GKG, fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum 2021, en þetta er í fyrsta sinn sem þau sigra á Íslandsmótinu í golfi.

Hulda Clara er fyrsti kvenkylfingurinn úr röðum GKG sem fagnar þessum titli. Sigurinn er jafnframt sögulegur fyrir GKG fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn sem báðir Íslandsmeistararnir eru úr GKG.

Alls hefur GKG sigrað 9 sinnum á Íslandsmótinu í karlaflokki – Birgir Leifur er með 6 titla, en aðrir sem hafa sigrað eru Sigmundur Einar Másson (2006), Bjarki Pétursson (2020) og Aron Snær Júlíusson (2021).

Sjá má lokastöðuna á Íslandsmótinu með því að SMELLA HÉR: 

Texti og mynd: GSÍ