Stúlknalandsliðið endaði í 16. sæti á EM í liðakeppni
Stúlknalandslið Íslands keppti Evrópumeistaramótinu í liðakeppni sem fram fór á Montado Golf Resort í Portúgal dagana 6.-10. júlí en um var að ræða keppni í efstu deild.
Spánverjar fögnuðu sigri eftir úrslitaleik gegn Frakklandi. Svíar enduðu í þriðja sæti eftir úrslitaleik um þriðja sætið gegn Dönum. Ísland endaði í 16. sæti
Lokastaðan:
1. Spánn
2. Frakkland
3. Svíþjóð
4. Danmörk
5. Tékkland
6. Ítalía
7. Portúgal
8. Holland
9. Slóvakía
10. Noregur
11. Rússland
12. Finnland
13. Pólland
14. Sviss
15. Belgía
16. Ísland
Ísland endaði einnig í 16. sæti í höggleikskeppninni og lék Ísland í B-riðli um sæti 9-16.
Finnar voru fyrstu mótherjar Íslands og hafði Finnland betur í hörkuleik 3/2. Katrín Sól Davíðsdóttir og Berglind Erla Baldursdóttir höfðu betur í fjórmenningsleiknum – og Sara Kristinsdóttir sigraði mótherja sinn 5/3. María Eir Guðjónsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdótir og Helga Signý Pálsdóttir töpuðu sínum viðureignum,
Ísland endaði einnig í 16. sæti í höggleikskeppninni og lék Ísland í B-riðli um sæti 9-16.
Finnar voru fyrstu mótherjar Íslands og hafði Finnland betur í hörkuleik 3/2. Katrín Sól Davíðsdóttir og Berglind Erla Baldursdóttir höfðu betur í fjórmenningsleiknum – og Sara Kristinsdóttir sigraði mótherja sinn 5/3. María Eir Guðjónsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdótir og Helga Signý Pálsdóttir töpuðu sínum viðureignum,
Ísland mætti Sviss í næstu umferð og sá leikur endaði með 4-1 sigri Sviss. Perla Sól Sigurbrandsdóttir sigraði í sinni viðureign 2/1 en aðra leiki vann Sviss.
Ísland mætti liði Belgíu í leik um 15. eða 16. sætið. Þar hafði liði Belgíu betur 3,5-1,5. Perla Sól Sigurbrandsdóttir vann sinn leik mjög örugglega og Katrín Sól Davíðsdóttir hélt jöfnu sinni viðureign. Aðrir leikir töpuðust.
Davíð Gunnlaugsson var þjálfari liðsins í þessari ferð og Aníta Ósk Einarsdóttir var sjúkraþjálfari stúlknalandsliðsins.
Alls tóku 16 lið þátt á EM 2021. Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana var leikinn höggleikur – 36 holur alls. Fimm bestu skorin töldu hjá hverju liði. Átta efstu liðin léku til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í holukeppni sem tók við af höggleiknum. Liðin í sætum nr. 9 -16 keppti einnig í holukeppni um sæti nr. 9-16.
Upplýsingar um rástíma, skor og úrslit má nálgast hér:
Eftirtaldir leikmenn voru í stúlknalandsliði Íslands:
- Berglind Erla Baldursdóttir, GM
- Helga Signý Pálsdóttir, GR
- Katrín Sól Davíðsdóttir, GM
- María Eir Guðjónsdóttir, GM
- Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
- Sara Kristinsdóttir, GM
Aðalmyndagluggi: Stúlknalandslið Íslands 2021. Frá vinstri: Davíð Gunnlaugsson liðsstjóri, Sara Kristinsdóttir, María Eir Guðjónsdóttir, Katrín Sól Davíðsdóttir, Berglind Erla Baldursdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Helga Signý Pálsdóttir. Mynd/seth@golf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
