Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2021 | 20:00

LPGA: Jin Young Ko sigraði á Volunteers of America Classic

Þann 1.-4. júlí var Volunteers of America mót vikunnar á LPGA.

Sigurvegari mótsins var Jin Young Ko frá S-Kóreu.

Sigurskor Ko var 16 undir pari, 268 högg (63 – 70 – 66 – 69).

Í 2. sæti var hin finnska Mathilda Carstren, aðeins 1 höggi á eftir og í því 3. Gaby Lopez frá Mexíkó, enn öðru höggi á eftir.

Með þessum sigri endurheimti Ko 1. sætið á heimslista kvenna – en Nelly Korda átti þar skamma dvöl, eftir frábæran árangur í ár.

Sjá má lokastöðuna á Volunteers of America í heild með því að SMELLA HÉR: