Steinunn Jónsdóttir, GSG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Jónsdóttir – 27. mars 2021

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Jónsdóttir. Steinunn er fædd 27. mars 1951 og á því 70 ára merkisafmæli!!! Steinunn er í Golfklúbbi Sandgerðis. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum, með góðum árangri. Komast má á facebook síðu Steinunnar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Steinunn Jónsdóttir, GSG. Mynd: Golf 1
Steinunn Jónsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: June Beebe Atwood, f. 27. mars 1913 – d. 10. nóvember 2003; Ricardo Mario Villalobos, 27. mars 1968 (53 ára);  Eysteinn Marvinsson, 27. mars 1969 (52 ára);  Ignacio Garrido, 27. mars 1972 (49 ára); David Dixon, 27. mars 1977 (44 ára!); rússneski kylfingurinn María Verchenova, 27. mars 1986 (35 ára);  Dansinn Lengi Lifi   27. mars 1947 (74 ára) …… og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is