Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Edith Cummings – 26. mars 2021

Það er Edith Cummings sem er afmæliskylfingur dagsins. Edith var fædd 26. mars 1899 og dó í nóvember 1984. Það eru því í dag nákvæmlega 122 ár frá fæðingardegi hennar og 37 ár frá dánardægri hennar. Hún var ein af fremstu áhugakylfingum síns tíma. Hún var ein af 4 fremstu hefðarmeyjum Chicago, þ.e. þeirra sem mesti fengur þótti í að kvænast (ens.: one of the Big Four debutantes in Chicago) í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Hún varð þekkt um öll Bandaríkin eftir sigur sinn 1923 í US Women´s Amateur. Þann 25. ágúst 1924 varð hún fyrsti kylfingurinn og fyrsti kveníþróttamaðurinn til þess að birtast á forsíðu Time Magazine.

Rithöfundurinn F. Scott Fitzgerald elskaði vinkonu Edith, Ginevru King, en hann gerði þær báðar ódauðlegar í bókum sínum því sögupersónan Jordan Baker í bókinni The Great Gatsby er talin að öllu leyti byggð á Edith Cummings.

Alexa Stirling t.v. óskar Edith Cummings t.h til hamingju með sigurinn á US Women´s Amateur 1923, en mótið fór fram í Westchester Country Club, Rye, N.Y.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru David Delong, 26. mars 1959 (62 ára); Debbie Hall, 26. mars 1960 (61 árs); Arnar Birgisson, 26. mars 1965 (56 ára); Lee Porter, 26. mars 1966 (55 ára); Brynja Haraldsdóttir, GP, 26. mars 1968 (53 ára); Ian Guy Hutchings, 26. mars 1968 (53 ára); Rachel Raastad, (norsk – spilar á LET access), 26. mars 1989 (32 ára); Saxhamar Sh (54 ára) …. og …..

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is