Helgi Snær Björgvinsson, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helgi Snær Björgvinsson – 1. apríl 2021

Afmæliskylfingur dagsins er Helgi Snær Björgvinsson.

Helgi Snær er fæddur 1. apríl 1998 og á því 23 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Helgi Snær er sérlega snjall púttari og hefir margoft sigrað í púttmótum t.a.m.  í Áramótagleði Hraunkots 31. janúar 2017.  Hann sigraði  í 2. móti Íslandsbankamótaraðarinnar í flokki 19-21 árs sama ár. Komast má á facebook síðu Helga Snæs til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Helgi Snær Björgvinsson, GK. Mynd: Helga Björnsdóttir

Helgi Snær Björgvinsson – Innilega til hamingju með 23 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Maureen Orcutt, f. 1. apríl 1907 – d. 9. janúar 2007; Dan Pohl, 1. apríl 1955 (66 ára); Ingvar Hreinsson, 1. apríl 1957 (64 ára); Donald William Hammond, 1. apríl 1957 (64 ára); Örn Hilmisson, 1. apríl 1965 (56 ára); Guðbjörn Ólafsson, 1. apríl 1967 (54 árs); Haraldur Már Stefánsson, 1. apríl 1975 (46 ára); Marc Warren, 1. apríl 1981 (40 ára STÓRAFMÆLI – Til hamingju!!!) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is