Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2021 | 19:00

23 golfklúbbar fá viðbótarframlag vegna Covid-19 aðgerða ÍSÍ og ríkisstjórnarinnar

Alls fengu 23 golfklúbbar úthlutun úr viðbótarframlag úr síðari úthlutun í aðgerðum ÍSÍ og ríkisstjórnarinnar til að bæta það tjón sem einingar innan ÍSÍ urðu fyrir vegna afleiðinga Covid-19 faraldursins. Vorið 2020 var úthlutað alls 450 milljónum kr. og nýverið var úthlutað 300 milljónum kr. til viðbótar. Um er að ræða framlag til íþróttafélaga sem starfrækja íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára.

Nánar má lesa um þessa úthlutun á vef ÍSÍ.

224 íþrótta- og ungmennafélög hljóta greiðslu að þessu sinni og er það í höndum aðalstjórna íþróttafélaga að ráðstafa framlaginu innan síns félags til þeirra deilda/verkefna sem hafa orðið fyrir tjóni vegna Covid-19.

Framlagið er ætlað til þess að koma til móts við það tjón sem hefur orðið innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Yfirlit yfir greiðslur til íþrótta- og ungmennafélaga – Almennar aðgerðir II

 

Klúbbur Upphæð
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 2,355,933
Golfklúbburinn Oddur 833,278
Golfklúbbur Mosfellsbæjar 763,001
Golfklúbburinn Keilir 602,369
Golfklúbburinn Leynir 595,676
Golfklúbbur Akureyrar 414,966
Golfklúbbur Selfoss 234,255
Golfklúbbur Suðurnesja 207,483
Golfklúbbur Vestmannaeyja 197,443
Golfklúbbur Álftaness 157,285
Golfklúbbur Sauðárkróks 150,592
Golfklúbburinn Hamar 143,899
Golfklúbbur Fjallabyggðar 127,167
Golfklúbburinn Nesklúbburinn 120,474
Golfklúbbur Fjarðabyggðar 110,434
Golfklúbbur Byggðarholts 100,395
Golfklúbbur Bolungarvíkur 97,048
Golfklúbbur Öndverðarness 93,702
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar 93,702
Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 87,009
Golfklúbbur Kiðjabergs 76,969
Golfklúbbur Þorlákshafnar 76,969
Golfklúbbur Reykjavíkur 73,623

Heimild: GSÍ