Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Vilhjálmur Steinar Einarsson og Alena Sharp – 7. mars 2021

Það eru tveir afmæliskylfingar í dag: Vilhjálmur Steinar Einarsson og Alena Sharp. Vilhjálmur Steinar er fæddur 7. mars 1961 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Vilhjálmur Steinar er í Golfklúbbi Sandgerðis (GSG).

Komast má á síðu afmæliskylfingsins Vilhjálms Steinars til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

Vilhjálmur Steinar Einarsson, GSG – Innilega til hamingju með afmælið!!! 🙂

Alena Sharp er fædd 7. mars 1981 og á því 40 ára stórafmæli. Hún er kanadískur kylfingur sem á í beltinu 9 sigra á alþjóðlegum mótum, þ.á.m. einn sigur á SYMETRA Tour.

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Homero Blancas, 7. mars 1938 (83 ára); Elín Harðardóttir, 7. mars 1958 (63 ára);  Tom Lehman, 7. mars 1959 (62 ára); Alfreð G Maríusson; 7. mars 1962 (59 ára); Jasper Parnevik, 7. mars 1965 (56 ára); Þorbjörn Guðjónsson, GR, 7. mars 1965 (56 ára); Alejandro Pedroza, 7. mars 1975 (46 ára – Happy B-day Alejandro!!!); Hlín Einarsdóttir, 7. mars 1977 (44 ára); Þórir Einarsson Long, 7. mars 1989 (32 ára) …. og ….

Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is