PGA: English sigraði á Sentry TOC 2021
Fyrsta mót ársins á PGA Tour, Sentry Tournament of Champions (skammst. TOC) lauk nú í nótt.
Mótið fór að venju fram á Plantation vellinum, á Kapalua, Hawaii, dagana 7.-10. janúar 2021.
Tveir voru efstir og jafnir eftir 72 holur þeir Joaquin Niemann frá Chile og bandaríski kylfingurinn Harris English, en báðir léku þeir á 25 undir pari, 269 höggum.
Lokahringur Niemann var sérlega glæsilegur en hann lék Plantation á 9 undir pari, 64 höggum – skilaði „hreinu“ skorkorti með 9 fuglum og 9 pörum!!! Glæsilegt
Bráðabana þurfti til að skera úr um úrslitin og var par-5 18. hola Kapalua spiluð aftur. Þar hafði Harris Englis betur – vann með fugli og er því sigurvegari á fyrsta móti ársins á PGA Tour.
Þetta var 3. PGA Tour title English.
Það var Justin Thomas, sem átti titil að verja, en hann hafnaði í 3. sæti að þessu sinni, á samtals 24 pari og vill örugglega gleyma þessu móti sem fyrst þar sem hann viðhafði óviðunandi ummæli um homma á 3. hring mótsins, sem hann baðst síðan afsökunar á.
Ryan Palmer varð síðan í 4. sæti á samtals 23 undir pari.
Sjá má lokastöðuna á Sentry TOC með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
