Gunnlaugur Árni
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2020 | 20:00

Formannafundi GSÍ frestað fram í febrúar 2021

GSÍ gaf frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:

Stjórn GSÍ tók ákvörðun á fundi sínum 2. nóvember um að fresta formannafundi GSÍ sem fyrirhugaður var 21. nóvember næstkomandi fram til 20. febrúar 2021 vegna aðstæðna sem skapast hafa vegna heimsfaraldursins Covid-19 og hertra samkomutakmarkana.

Ársreikningur GSÍ verður sendur til golfklúbba á næstu dögum og ásamt því verða önnur gögn, s.s. fjárhagsáætlun 2021/2022, birt á sérstakri heimasíðu formannafundarins á næstu vikum. Upplýsingar um heimasíðuna verða gefnar upp þegar síðan er tilbúin.“

F.h. stjórnar GSÍ
Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri.