Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: James Alexander Barclay – 29. október 2020

James Alexander Barclay fæddist 29. október 1923 í Glasgow og hefði orðið 96 ára í dag en hann lést 3. desember 2011, 88 ára að aldri. Barclay var rannsóknarmaður og forstjóri í kanadíska olíubransanum, en einnig kylfingur og höfundur 626 bls. golfbókar, sem nefnist: Golf in Canada – A history, sem er yfirgripsmesta verk, um golf sem gefið hefir verið út í Kanada.

Barclay hóf feril sinn með því að spila með járnum með valhnotu (hickory) sköftum í Skotlandi. Hann útskrifaðist í efnafræði frá Glasgow háskóla og vann stærstan part ævinnar í olíubransanum og náði hæst að verða varaforstjóri olíufyrirtækis. Hann fluttist til Kanada 1968, en settist í helgan stein 1983 og vann á efri árum við framkvæmdastjórastörf hjá Royal Canadian Golf Association. Hann fékk áhuga á golfsögu Kanada og skrifaði auk fyrrgreinds verks fjölda golfgreina í golftímarit í Kanada. James A. Barclay fékk inngöngu í frægðarhöll kylfinga í Kanada. Hann hefir lengi verið félagi í St. George´s Golf and Country Club í Torontó, Kanada.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Theodore James (Ted) Schulz, 29. október 1959 (60 ára MERKISAFMÆLI); Madeline Ziegert, 29. október 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI) – sænsk spilar á LET Access; Jessica Wilcox, 29. október 1991 (28 ára) – ensk spilar á LET Access

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is