Andlát: Kristín Halldóra Pálsdóttir
Kristín Halldóra Pálsdóttir, hjúkrunarforstjóri og afrekskylfingur, lést á líknardeild Landspítalans 10. september 2020 s.l. Kristín fæddist 14. maí 1945 í Hafnarfirði og var 75 ára þegar hún lést. Hún var hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar í Hafnarfirði og síðar framkvæmdastjóri sömu stofnunar.
Kristín var afrekskona í þeim íþróttum sem hún stundaði. Hún varð m.a. tvívegis Íslandsmeistari með liði FH í handknattleik en golfíþróttin átti hug hennar allan eftir að handboltaferlinum lauk. Kristín var sannarlega ein af driffjöðrum golfíþróttarinnar á Íslandi og sérstök fyrirmynd kvenna í golfi.
Kristín hóf golfiðkun hjá Golfklúbbnum Keili árið 1970. Með markvissum æfingum frá upphafi náði mjög fljótt góðum tökum á golfíþróttinni, með það fyrir augum að ná árangri. Æfingarnar skiluðu árangri og aðeins fimm árum eftir að hún byrjaði í golfi varð hún Íslandsmeistari. Þá tókst henni að verja titilinn árið 1976.

Hún var fyrsti kylfingurinn úr Golfklúbbnum Keili sem fagnaði Íslandsmeistaratitli í golfi í kvennaflokki. Kristín ruddi einnig brautina fyrir íslenska afrekskylfinga í kvennaflokki. Hún tók fyrst íslenskra kvenna þátt í alþjóðlegu golfmóti þegar hún lék í Kalmar í Svíþjóð árið 1976.
Hjá Keili varð Kristín margfaldur klúbbmeistari. Hún varð einnig margfaldur Íslandsmeistari í keppni eldri kylfinga og lék m.a. með fyrsta landsliði eldri kylfinga í kvennaflokki. Afrekaskrá Kristínar í golfíþróttinni er löng en hún tók þátt í fjölmörgum alþjóðlegum verkefnum, í keppni einstaklinga og liða.
Kristín lét mikið að sér kveða á mörgum sviðum golfhreyfingarinnar og skilur eftir sig djúp spor í íslenskri golfsögu.
Kristín var ekki aðeins fremst í flokki í keppni á golfvellinum. Hún var einnig mjög virkur þátttakandi í félagsstarfi Golfklúbbsins Keilis og einnig hjá Golfsambandi Íslands. Kristín var í 13 ár liðsstjóri kvennalandsliðsins á fjölmörgum mótum víðsvegar um heiminn, þar sem reynsla hennar og þekking kom að góðum notum. Kristín sat meðal annars í stjórn Keilis, Golfsambands Íslands og Landssambandi eldri kylfinga. Hún var sæmd gullmerki Keilis og GSÍ fyrir ómetanlegt framlag sitt til golfíþróttarinnar.
Golf 1 færir fjölskyldu og aðstandendum Kristínar innilegar samúðarkveðjur.

Stjórn GSÍ árið 1985. Efri röð frá vinstri: Frímann Gunnlaugsson framkvæmdastjóri GSÍ, Hannes hall,Ómar Jóhannsson og Guðmundur S. Guðmundsson.
Neðri röð frá vinstri: Kristín Pálsdóttir, Konráð Bjarnason forseti GSÍ og Gísli Sigurðsson. Mynd/GSÍ.

Kristín Pálsdóttir GK tekur við hamingju-óskum eftir sigur á Íslandsmótinu 1976.
Jakobína Guðlaugsdóttir GV fylgist með. Ljósmynd Kristinn Benediktsson.
Texti og myndir: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
