Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Adam Scott ——- 16. júlí 2020

Afmæliskylfingur dagsins er einn vinsælasti kylfingur a.m.k. meðal kvenþjóðarinnar – maður sem hvað eftir annað hefir verið valinn kynþokkafyllsti kylfingur allra tíma… og sem er þar að auki líka góður kylfingur: Masters risamótsmeistari ársins 2013… ástralski kylfingurinn Adam Derek Scott.

Adam fæddist Adelaide í Ástralíu, 16. júlí 1980 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Hann býr í Crans-Montana í Sviss. Adam gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og hefir á ferli sínum sigrað 29 sinnum, þ.á.m. 10 sinnum á evrópsku mótaröðinni og 13 sinnum á PGA. Honum tókst loks að rjúfa álögin sem hvílt hafa á áströlskum kylfingum á Masters risamótinu 2013, þar sem hann sigraði!!! Adam er eflaust líka einn þeirra sem lítur löngunaraugum á Claret Jug, en Opna breska, risamót allra risamóta stendur einmitt yfir nú. Besti árangur hans á Opna breska fyrir þann tíma var 2. sætið á Royal Lytham & St. Annes 2012, þar sem hann glutraði niður sigrinum á síðustu holunum s.s. öllum er eflaust í fersku minni. Adam Scott er núverandi nr. 16 á heimslistanum.

Þess mætti í lokin geta þess að á þessum degi fyrir 9 árum birtust fréttir Golf 1 í fyrsta skiptið á Facebook – Golf 1 golffréttavefurinn opnaði þó ekki formlega fyrr en 2 1/2 mánuði síðar þ.e. 25. september 2011.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Anna Sigríður Pálsdóttir, 16. júlí 1947 (73 ára); Guðmundur Einarsson, GSG, 16. júlí 1951 (69 ára); Íris Hera Jónsdóttir, 16. júlí 1958 (62 ára); Sóley Ragnarsdóttir, 16. júlí 1961 (59 ára); Tom Gillis, 16. júlí 1968 (52 ára); Rodney Fletcher, 16. júlí 1968 (52 ára); Stuart Cage, 16. júlí 1973 (47 ára); Bjarni Magnússon, 16. júlí 1976 (44 ára); Ólafur Sigurjónsson, 16. júlí 1977 (43 ára) Thomas Edward Aiken, 16. júlí 1983 (37 ára); Kim Joo-Mi (kóreanska 김주미 ) 16. júlí 1984 (36 ára); Anton Ingi Arnarsson, 16, júlí 1997 (23 ára); Tristan Snær Viðarsson, GM, 16. júlí 2004 (16 ára); .… og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is