Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hrafnkell Óskarsson – 25. júní 2020

Afmæliskylfingur dagsins er Hrafnkell Óskarsson. Hrafnkell er fæddur 25. júní 1952 og á því 68 ára afmæli í dag!!! Hrafnkell er læknir með sérfræðileyfi í skurðlækningum frá Svíþjóð 1988. Hrafnkell er góður kylfingur, sem er í Golfklúbbi Mosfellsbæjar (GM) og hefir m.a. verið sigursæll í opnum mótum, t.a.m. á viðmiðunarmótum LEK.

Komast má á facebooksíðu Hrafnkels til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Hrafnkell Óskarsson (68 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Brimnes Áhöfn 100 ára); Ervin Szalai (56 ára); Vance Veazey, 25. júní 1965 (55 ára); Paul Affleck 25. júní 1966 (54 ára); David Park, 25. júní 1974 (46 ára); Sæþor Jensson, 25. júní 1975 (45 ára); Hendrik Johannes „Hennie“ Otto, 25. júní 1976 (44 ára); Masahiro Kawamura, 25. júní 1993 (27 ára) ….. og …… Til Styrktar Ragnari Emil

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið og öðrum kylfingum innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is