Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 19. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Charlotte Thomas (47/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu og þær fjórar sem deildu 20. sætinu.

Næst verða kynntar þær 10 stúlkur sem deildu 10. sætinu þ.e. urðu T-10, en allar spiluðu þær á samtals 3 yfir pari, 364 höggum og tryggðu sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET).  Ein þessara stúlkna, Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefir þegar verið kynnt, en verður kynning hennar birt aftur. Hinar 9 sem náðu þessum glæsilega árangri að verða T-10 voru Charlotte Thomas frá Englandi; Tiia Koivisto frá Finnlandi, Eun Jung Ji frá S-Kóreu, Sophie Hausman og Carolin Kauffmann frá Þýskalandi, Morgane Metraux frá Sviss, Filippa Moork frá Svíþjóð, Pia Babnik frá Slóveníu, en hún var jafnframt yngsti keppandinn í þessu lokaúrtökumóti og síðan hin franska Anne Charlotte Mora.

Byrjað verður á að kynna Charlotte Thomas en hún varð uppreiknað í 19. sætinu.

Charlotte Thomas fæddist 23. febrúar 1993 í Guildford á Englandi og er því 27 ára.

Hún byrjaði í golfi 11 ára, en þegar hún var 12 ára fluttist hún, vegna vinnu föður síns til Singapore.

Það var mamma hennar, Fleur, sem kom henni af stað í golfinu, en Charlotte á líka 3 bræður, sem allir eru góðir kylfingar.

Í Singapore, kynntist Charlotte þjálfara sínum, sem enn þjálfar hana, Craig McLean.

Enn fluttist hún, nú 16 ára til Ástralíu og 3 árum síðar var hún komin til Bandaríkjanna í háskólagolfið.

Thomas spilaði í bandaríska háskólagolfinu á árunum 2012-2016 með golfliði University of Washington, The Huskies.

Sjá má afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR: 

Eftir útskrift hefir hún reynt fyrir sér á Symetra og LPGA og náði m.a. 2. sætinu ISPS Handa Vic Open, 2019 og viku síðar 6. sætinu á fyrsta LPGA mótinu sínu í Phoenix. Það sem eftir var árs 2019 átti hún erfitt í þeim 19 mótum á LPGA, sem hún spilaði í og ákvað því að söðla um og spila í Evrópu.

Það gekk upp.

Keppnistímabilið 2020 verður hún með fullan spilarétt á LET!