Alejandro Cañizares
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2020 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Alejandro Cañizares (26/28)

28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.

Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.

Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.

Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson, GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.

Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-28, þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu; þá 4, sem deildu 13. sætinu; þá 5, sem urðu T-8 og Aaron Cockerill, sem varð í 7. sæti. Eins hefir Golf 1 kynnt þá Rasmus Højgaard og Laurie Canter, sem urðu T-5 og S.S.P. Chawrasia, sem varð í 4. sæti á 17 undir pari, 411 höggum 411 höggum (69 66 71 67 69 69).

Nú verður kynntur sá, sem hafnaði í 3. sæti en það er spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares.

Alejandro Cañizares fæddist í Madríd á Spáni, 9. janúar 1983 og er því 37 ára. Alejandro spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Arizona State. Hann varð atvinnumaður í golfi 2006 og komst strax á Evrópumótaröðina og hóf keppni þar með stæl því strax í 3. móti sínu sigraði hann á Imperial Collection Russian Open.

Pabbi Alejandro José Maria var líka á Evrópumótaröðinni – reyndar er Alejandro af einni þekktustu golffjölskyldu Spánar, en pabbi hans var m.a. í 4 Ryder Cup liðum fyrir Evrópu (1981, 83, 85, 89). Pabbi Alejandro vann líka heimsbikarinn með José Rivero, 1984, meðan bróðir hans Gabriel spilar á Áskorendamótaröðinni. Alejandro og pabbi hans urðu 3. feðgarnir til þess að sigra sama árið á Evrópumótaröðinni á eftir Antonio og Ignacio Garrido og Craig og Kevin Stadler.

Árið 2009 varð Alejandro að fara aftur í Q-school og þá varð hann í 5. sæti og hlaut keppnisrétt 2010 tímabilið. Það ár, 2010, varð hann 5 sinnum meðal topp 10 og varð í 38. sæti á stigalistanum. Hann hefir af og til síðan þá þurft að endurnýja kortið sitt á Evróputúrnum og náði því 2018 að verða í efsta sæti í Q-school og tryggði sér þannig endurnýjaðan spilarétt á Evróputúrnum 2019 – Það ár gekk ekki nógu vel og því varð hann aftur að fara í Q-school og landaði 3. sætinu og keppnisrétti á 2020 keppnistímabilinu

Meðal áhugamála afmæliskylfingsins eru tónlist, íþróttir og að fara á ströndina. Á Spáni er Alejandro félagi í einum virtasta og besta golfklúbbi Evrópu, Valderrama.