Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 20. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Karlotta Einarsdóttir – 20. apríl 2020

Það er Karlotta Einarsdóttir, margfaldur klúbbmeistari NK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Karlotta er fædd 20. apríl 1984 og á því 36 ára afmæli í dag!!! Hún hefir orðið klúbbmeistari kvenna í Nesklúbbnum í alls 15 skipti (2000-2002; 2004-2012 og 2016-2018) og langoftast allra kvenna í Nesklúbbnum. Síðasta klúbbmeistaratitil sinn vann hún ofrísk komin 5 mánuði á leið.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan

Karlotta klúbbmeistari kvenna í NK 2018 og mörg undanfarin ár! Til hamingju!!!

F. 20. apríl 1984 (36 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tom Morris Jr. 20.apríl 1851-d. 1881; Árni Sævar Jónsson, golfkennari, 20. apríl 1943 (77 ára); Sigþóra O Sigþórsdóttir, 20. apríl 1962 (58 ára); Rósa Arnardóttir, 20. apríl 1962 (58 ára); Bjarni Haukur Þórsson, 20. apríl 1971 (49 ára); John Gerard Senden, 20. apríl 1971 (49 ára) …. og …. Hrönn Kristjánsdóttir GK, 20. apríl og Flavia Moreira Lima Granella frá Brasilíu

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is