Haraldur Franklín Magnús Afmæliskylfingur dagsins: Haraldur Franklín Magnús – 16. mars 2020
Það er Haraldur Franklín Magnús, sem er afmæliskylfingur dagsins. Haraldur Franklín fæddist 16. mars 1991 og á því 29 ára afmæli í dag. Hann varð Íslandsmeistari í holukeppni árið 2012 og Íslandsmeistari í höggleik sama ár og endaði þar með eyðimerkurgöngu klúbbs síns, GR, í þeim efnum, en enginn GR-ingur hafði hampað Íslandsmeistaratitilinum í 27 ár þegar Haraldur afrekaði það að landa titlinum á Hellu. Sjá viðtal Golf 1 í kjölfar Íslandsmeistaratitilsins við Harald Franklín, sem gaman er að rifja upp nú SMELLIÐ HÉR: Haustið eftir viðtalið og næstu 4 ár lék Haraldur Franklín í bandaríska háskólagolfinu með Mississippi State en síðan The Ragin Cajuns þ.e. golfliði Louisiana Lafayette háskólans. Eftir útskrift hefir Haraldur Franklín náð hverjum einstaka árangrinum á fætur öðrum í golfíþróttinni. Sem dæmi má nefna að hann er fyrsti íslenski karlkylfingurinn til þess að spila í Opna breska, en í því risamóti tók hann þátt árið 2018. Í fyrra varð hann ennfremur 4. íslenski kylfingurinn til að tryggja sér sæti á næststerkustu karlmótaröð Evrópu, Áskorendamótaröðinni. Að undanförnu hefir Haraldur Franklín verið að gera góða hluti á Nordic Golf League mótaröðinni, þar sem hann er einnig með spilarétt.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Haraldi Franklín til hamingju með daginn hér að neðan:

Haraldur Franklín Magnús. Mynd: Golf 1
Haraldur Franklín Magnús – 29 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lucy Barnes Brown, f. 16. mars 1859 (Vann fyrsta US Women´s Amateur); Richard Tufts, f. 16. mars 1896; Hollis Stacy, 16. mars 1954 (66 ára); Vincent Tshabalala, 16. mars 1943 (77 ára); Guðný Ævarsdóttir, 16. mars 1963 (57 ára); Sigga Sif Sævarsdóttir, 16. mars 1968 (52 ára); Simon Yates, 16. mars 1970 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Joakim Bäckström, 16. mars 1978 (42 ára); Bud Cauley, 16. mars 1990 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!), Beau Hossler, 16. mars 1995 (25 ára – spilar á PGA Tour)… og … Anna Sigriður Magnúsdóttir, 16. mars
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
