Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2020 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar & félagar urðu í 4. sæti

Björn Óskar Guðjónsson, GM og félagar í The Ragin Cajuns, háskólaliði Louisiana Lafayette, tóku þátt í All American Intercollegiate mótinu.

Mótið fór fram dagana 16.-18. febrúar í Humble, Texas og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 81 frá 13 háskólum.

Björn Óskar lék á samtals 222 höggum (72 77 73) og var á 4. besta skorinu í liði sínu. Hann varð T-45 í einstaklingskeppninni.

Lið Louisiana Lafayette hafnaði í 4. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á The All American Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Louisiana Lafayette er 24. febrúar n.k.