Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2020 | 02:46

LET: Guðrún Brá komst ekki g. niðurskurð í Bonville

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, hefir lokið 2. hring sínum á Geoff King Motors Australian Ladies Classic, Bonville.

Mótið er samstarfsverkefni LET og hinnar áströlsku ALPG mótaraðar og fer fram 20.-23. febrúar 2020 á Bonville Golf Resort í Bonville, Ástralíu.

Því miður lítur ekki út fyrir að Guðrún Brá hafi komist í gegnum niðurskurð því hún lék á samtals 5 yfir pari, 149 höggum, en niðurskurðarlínan miðast sem stendur við samtals 1 yfir pari, eða betur.

Samtals lék Guðrún Brá, sem segir á 5 yfir pari, 149 höggum (74 75).

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, sem einnig spilar í mótinu, er á 5 yfir pari fyrir 2. hringinn og verður því að eiga glæsihring til þess að komast í gegnum niðurskurð, en hún er á þessari stundu ekki farin út.

Sjá má stöðuna á Geoff King Motors Australian Ladies Classic, Bonville, með því að SMELLA HÉR: