Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2020 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Isabelle Johansson (3/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR: 

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu.

Þær sem eru í sætum 21-65 hljóta spilarétt, mismikinn þó, á LET Access mótaröðinni og þær sem eru ofarlega komast stundum í LET mót.

Sú sem varð ein í 65. sæti er sænska stúlkan Isabelle Johansson, en hún lék hringina 5 á samtals á 19 yfir pari, 380 höggum (77 73 76 72 82).

Isabelle Johansson fæddist 14. júlí. Foreldrar hennar eru Mikael og Gitte Johansson og hún á tvo bræður Kristoffer og Isak. Hún er frá Sala í Svíþjóð.

Í Svíþjóð var hún í Celsiusskolan á menntaskólaárum sínum.

Isabelle spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Kentucky og lagði stund á samskiptafræði (ens.: communication)