Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2020 | 08:00

LET: Aldrei meira verðlaunafé í mótum LET

Í fyrsta sinn í sögu LET munu keppendur á mótaröðinni spila um verðlaunafé sem er samtals næstum €18 milljónir (þ.e. 2466 milljónir íslenskra króna eða tæpur 2,5 milljarður íslenskra króna) árið 2020.

Þetta er hækkun  €4.5 milljónir (þ.e. 616.5 milljónir íslenskra króna) frá árinu 2019.

Á LET dagskránni eru 24 mót, þar af 15 í Evrópu og þar að auki eru síðan Ólympíuleikarnir í Tókýó Japan, þar sem golfið er keppnisgrein.

Mót utan Evrópu eru haldin í 9 löndum og fara þau fram í Ástralíu (2 mót), Dúbaí, Indlandi, Japan, Kenýa, Marokkó, Sádí-Arabíu, Suður-Afríku og Thaílandi.

Þar sem Guðrún Brá er í flokki 8a kemst hún í flest af þessum 24 mótum.

Stigalisti LET heitir The Race to Costa del Sol og skipta þrjár efstu á honum í lok árs með sér €250,000 (sem eru rúmar 34 milljónir íslenskra króna) aukabónus.

Dagskrá LET hefst með  Australian Ladies Classic Bonville, þann 20. febrúar n.k. og lýkur í nóvember í haust með Andalucía Costa del Sol Open de España Femenino, en í lokamótinu hefir verðlaunaféð verið tvöfaldið í €600,000 (82 milljónir íslenskra króna), frá árinu áður.

Sjö mót bætast við og 7 mót hafa verðlaunafé yfir €500,000 (68.5 milljónir íslenskra króna).

Þau mót þar sem verðlaunaféð er hæst eru $1 milljón (124 milljónir íslenskra króna) í Sádí-Arabíu og  €1.5M (205.5 milljónir íslenskra króna) í móti sem er samstarfsverkefni við Evróputúr karla.

Verðlaunaféð skiptir gríðarlegu máli, ekki bara sem umbun fyrir vel spilað mót, heldur gefur það stig á stigalistann – The Race to Costa del Sol – en að vera sem efst á honum tryggir áframhaldandi keppnisrétt og e.t.v. aukinn (ef vel gengur) keppnisrétt á LET.

Í aðalmyndaglugga:  F.v.:   Framkvæmdastjóri LET Keith Pelley, sú sem hefir forsæti í stjórn LET Marta Figueras-Dotti, formaður LET Alexandra Armas, fyrirliði liðs Evrópu í Solheim Cup Catriona Matthew og framkvæmdastjóri LPGA Mike Whan eftir sögulegan stjórnarfund í höfðustöðvum LET í Buckinghamshire golfklúbbnum í Englandi, föstudaginn 24. janúar 2020 sl. þar sem m.a. var tilkynnt hækkunina á verðlaunafénu og mótaskrána.