Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Darren Fichardt (7/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GKB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.
Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn: Jean Babtiste Gonnet frá Frakklandi, Dale Whitnell frá Englandi og Svíana Niklas Lemke og Rikard Karlberg. Þessir 4 deildu 25. sætinu, léku allir á samtals 12 undir pari, 416 höggum. Eins hefir Golf 1 kynnt þann sem varð í 24. sætinu, Toby Tree frá Englandi.
Næst verða kynntir þeir 8 kylfingar sem deildu 17. sætinu en það eru: Sihwan Kim frá Bandaríkjunum, Pedro Figueiredo frá Portúgal, Jonathan Caldwell frá N-Írlandi, Bradley Dredge, frá Wales; Englendingurinn Dave Coupland; Darren Fichardt, Lars Van Meijel frá Holland og Toby Tree frá Englandi. Allir léku þeir á samtals 13 undir pari, 415 höggum. Tree og Van Meijel hafa þegar verið kynntir.
Í dag verður kynntur sá sem landaði 22. sætinu en það var s-afríski kylfingurinn Darren Fichardt.
Darren Clive Fichardt fæddist 13. maí 1975 í Pretoríu, Suður-Afríku og er því 44 ára. Hann er í dag 1,72 m á hæð og 75 kg. Hann ólst upp í Centurion, Gauteng í Suður-Afríku.
Fichardt var í Sutherland High School á árunum 1988-1993, þar sem hlúð var að frábærri golfkunnáttu hans. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1994 og varð efstur á stigalista Sólskinstúrsins suður-afríska (sem áður hét South Africa Tour) á árunum 1999/2000 og 2003/04.
Fichardt tók þátt ásamt Retief Goosen fyrir hönd Suður-Afríku í heimsbikarnum (ens.: WGC-World Cup) árið 2000.
Fichardt er ekki „nýr strákur“, heldur reynslubolti eins og áður hefir verið minnst á; Hann hefir spilað á Evrópumótaröðinni frá árinu 2001 og hefir sigrað þar 5 sinnum – Eins hefir hann sigrað 16 sinnum á Sólskinstúrnum suður-afríska.
Þann 25. mars 2001 sigraði hann á Sao Paulo Brazil Open, sem þá var hluti af Evrópumótaröðinni. Hann átti 5 högg á þá José Cóceres, Richard S. Johnson og Brett Rumford.
Annar sigurinn á Evróputúrnum kom á Qatar Masters þann 16. mars 2003, þar sem hann vann í bráðabana gegn landa sínum James Kingston.
Þriðji sigurinn á Evróputúrnum vannst á Saint Omer Open í fyrra á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní 2012, en þar vann hann loks eftir 9 ára sigurleysi; átti 3 högg á Gary Lockerbie.
Nú í gær vann hann svo 4. titil sinn á Evróputúrnum á Africa Open 2013, þegar hann hafði betur gegn þeim Grégory Bourdy frá Frakklandi og Jaco Van Zyl, landa sínum, sem var að fiska eftir 1. sigri sínum á Evrópumótaröðinni.
Alls hefir Darren Fichardt unnið 21 sigur á atvinnumannsferli sínum.
Hann hefir verið kvæntur konu sinni Natöshu frá árinu 2000 og á með henni synina Ethan (f. 2005) og Tristan (f. 2007).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
