Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Toby Tree (5/28)

28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.

Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.

Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.

Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR;  Bjarki Pétursson,GKB og  Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.   Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.

Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn: Jean Babtiste Gonnet frá Frakklandi, Dale Whitnell frá Englandi og Svíana Niklas Lemke og Rikard Karlberg. Þessir 4 deildu 25. sætinu, léku allir á samtals 12 undir pari, 416 höggum.

Næst verða kynntir þeir 8 kylfingar sem deildu 17. sætinu en það eru: Sihwan Kim frá Bandaríkjunum, Pedro Figueiredo frá Portúgal, Jonathan Caldwell frá N-Írlandi, Bradley Dredge, frá Wales;  Englendingurinn Dave Coupland;  Darren Fichardt, Lars Van Meijel frá Holland og Toby Tree frá Englandi. Allir léku þeir á samtals 13 undir pari, 415 höggum

Í dag verður sá kynntur stuttlega, sem vermdi 24. sætið en það er enski kylfingurinn Toby Tree.

Toby Tree fæddist 3. júní 1994 í Kingston, Englandi og er því 25 ára.

Tree er fremur hávaxinn 1,88 m og 79 kg.

Tree gerðist atvinnumaður í golfi tvítugur að aldri, þ.e. 2014.

Frá árinu 2015 hefir Tree mestmegnis spilað á Áskorendamótaröð Evrópu. Besti árangur hans þar var T-4 árangur, 24. júní 2018 á SSE Scottish Hydro Challenge hosted by Macdonald Hotels & Resorts.

Á Evróputúrnum er besti árangur Tree til dagsins í dag T-14 árangur á Tshwane Open, 14. febrúar 2016.

Sem stendur er Tree nr. 1080 á heimslistanum.

Toby lék á samtals 13 undir pari, 415 högg (67 67 72 68 69 72) og tryggði sér þannig (T-17 árangur) eða uppreiknað 24. sætið í lokaúrtökumótinu og spilar því á mótaröð þeirra bestu í Evrópu 2020, Evróputúrnum.