Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Niklas Lemke (3/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Golf 1 mun byrja á þeim sem rétt sluppu inn á mótaröðina en þeir eru 4: Jean Babtiste Gonnet frá Frakklandi og Dale Whitnell frá Englandi, sem þegar hafa verið kynntir og Svíarnir Niklas Lemke og Rikard Karlberg. Þessir 4 deildu 25. sætinu, léku allir á samtals 12 undir pari, 416 höggum. Í dag verður Niklas Lemke kynntur.
Niklas Lemke fæddist 23. apríl 1984 í Linköping og er því 35 ára.
Í dag býr hann í Gautaborg og heima í Svíþjóð er Lemke í Oijared golfklúbbnum.
Lemke er 1,85 m á hæð.
Sem áhugamaður tók Lemke þátt í mörgum liðakeppnum, sem hluti af landsliði Svíþjóð m.a. í Jacques Leglise Trophy 2001 (sigraði) Eisenhower Trophy 2002 og 2006 og St Andrews Trophy 2002.
Hann lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Arizona State University og meðalhöggafjöldi hans þar, 70.04 er 3. besti meðalhöggafjöldinn í sögu skólans á eftir meðalhöggafjölda Paul Casey (69.87, 1999-2000) og Phil Mickelson (69.95, 1991-1992).
Niklas Lemke gerðist atvinnumaður í golfi 2007.
Eftir útskrift úr skólanum hefirLemke spilað bæði á Áskorendamótaröð Evrópu (Challenge Tour) og eins Web.com Tour í Bandaríkjunum.
Áhugamál Lemke utan golfsins eru íþróttir almennt.
Sem stendur er Lemke í 394. sæti heimslistans.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
