Úrtökumót f. Evróputúrinn: Sögulegt – 3 íslenskir kylfingar í lokaúrtökumótinu
Nýr kafli var skrifaður í golfsögubækurnar: 3 íslenskir kylfingar tóku í fyrsta sinn í golfsögunni þátt í lokaúrtökumóti fyrir Evróputúrinn.
Íslensku þátttakendurnir sem þátt tóku í lokaúrtökumótinu voru þeir Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson, GKB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.
Því miður komst enginn þeirra í gegn og á Evróputúrinn að þessu sinni.
Guðmundur Ágúst stóð sig best íslensku strákanna; var aðeins 4 höggum frá kortinu sínu á Evróputúrinn 2020, en til þess að komast í hóp þeirra 77, sem spila tvo lokahringina þurfti að vera á samtals 4 undir pari eða betra eftir fyrstu 4 hringina, að þessu sinni.
Guðmundur Ágúst lék á samtals á sléttu pari, 286 höggum (72 67 75 72) og varð í 105. sæti af þeim 156 sem þátt tóku í lokaúrtökumótinu.
Bjarki Pétursson lék á samtals 3 yfir pari, 289 höggum (74 66 77 72) og varð í 124. sæti og 7 höggum frá kortinu sínu á Evróputúrinn.
Andri Þór lék á samtals 7 yfir pari, 293 höggum (72 73 71 77) og varð í 141. sæti og 11 höggum frá sæti á Evróputúrnum.
Lokaúrtökumótið fer fram dagana 15.-20. nóvember 2019 á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Sjá má stöðuna á lokaúrtökumótinu í Lumine með því að SMELLA HÉR:
Í aðalmyndaglugga: frá Hills golfvellinum á Lumine golfstaðnum á Allicante á Spáni.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
