Hver er kylfingurinn: Tyrrell Hatton?
Tyrrell Hatton sigraði í 4. sinn á atvinnumannsferli sínum á Evróputúrnum sl. sunnudag þ.e. á Turkish Airlines Open.
Hann er ekki alveg óþekkt nafn í golfheiminum, en heldur ekki sá þekktasti. Er að festa sig í sessi.
Hver er kylfingurinn kunna sumir að spyrja?

Tyrrell Hatton
Tyrrell Glen Hatton fæddist 14. október 1991 í High Wycombe, Buckinghamshire, í Englandi og er því 28 ára.
Sem áhugamaður fyrir 9 árum, aðeins 19 ára tók hann í fyrsta sinn þátt í risamóti þ.e. Opna breska 2010.
Besti árangur hans í risamótum er T-5 árangur, einmitt á Opna breska, árið 2016.
Áður en hann komst á Áskorendamótaröð Evrópu 2012 spilaði Hatton aðallega á PGA EuroPro Tour og Jamega Pro Golf Tour og hefir sigrað í móti á báðum mótaröðum.
Fyrsti sigur Hatton, sem atvinnumanns kom íWoodcote Park golfklúbbnum á Jamega Tour. Hann fylgdi þessu eftir með 2. sigri á Jamega Tour á Caversham Heath. Hatton sigraði á úrtökumótinu fyrir PGA EuroPro Tour árið 2012, en mótið fór fram í Frilford golfklúbbnum. Hann fylgdi þessu eftir með 2. sigri á Your Golf Travel Classic í Bovey Castle á sama keppnistímabili. Hann var valinn nýliði ársins 2012.
Hatton spilaði á Áskorendamótaröð Evrópu 2012 og 2013. Bestu árangrar hans þar voru T-2 árangrar á Kazakhstan Open og The Foshan Open árið 2013. Hann varð í 10. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar árið 2013 og komst þannig á Evróputúrinn.

Tyrell Hatton
Hatton náði strax þeim glæsilega árangri að verða T-2 á Joburg Open 2014, sem hefði veitt honum rétt til þess að spila á Opna breska 2014. Hann komst þó ekki þar sem hann deildi 2. sætinu og sá sem hærri er á heimslistanum kemst. Hann varð síðan T-4 á Aberdeen Asset Management Scottish Open, sem veitti honum þátttökurétt í mótinu.
Þann 9. október 2016 innsigldi Hatton fyrsta sigur sinn á Evróputúrnum á Alfred Dunhill Links Championship á St Andrews. Hann lauk keppni á 23 undir pari, 4 höggum bestur en Richard Sterne frá S-Afríku og Ross Fisher frá Englandi. Á lokahringnum var Hatton á 6 undir pari, 66 höggum og jafnaði vallarmetið á St. Andrews Old Course, með 62 á 3. hring. Eftir þann sigur stökk hann á topp-35 á heimslistanum eftir að hafa verið í 53. sæti.
Hatton strögglaði mestallt sumarið 2017, en var í sigurstöðu á British Masters, en eftir vonbrigða helgi lauk hann keppni T-8. Hann hlaut gagnrýni fyrir skap á vellinum og reynsluboltinn Gary Evans sagði Hatton „þroskast“ Hatton svaraði þessu viku seinna eftir að hafa varið titil sinn á Alfred Dunhill Links með því að segja: „Enginn er fullkominn.“ Hatton vann líka vikuna þar á eftir á Opna ítalska.
Í september 2019 komst Hatton í Ryder bikars lið Evrópu. Evrópa sigraði Bandaríkin 17 1/2 – 10 1/2 á Le Golf National fyrir utan París, í Frakklandi. Hatton stóð sig ágætlega me 1-2-0 árangur en tapaði í tvímenningi fyrir Patrick Reed.

Þann 10. nóvember 2019 sigraði Hatton síðan, eins og áður er minnst á á Turkish Airlines Open. Hann spilaði á 20 undir pari og endaði í 6 manna bráðabana sem hann vann á 4. holu og þar með líka verðlaunaféð fyrir 1. sæti $2,000,000 USD (u.þ.b. 250 milljónir íslenskra króna).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
