Haraldur Franklín Magnús, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2019 | 18:00

Úrtökumótin f. Evróputúrinn: Haraldur komst ekki á 3. stigið

Haraldur Franklín Magnús, GR tók þátt í 2. stigs úrtökumóti fyrir Evróputúrinn á Alenda golfstaðnum, í Alicante, á Spáni.

Haraldur Franklín lék á samtals 5 yfir pari og komst því miður ekki á lokaúrtökumótið.

Hann lék lokahringinn vel; var á 2 undir pari en það dugði því miður ekki til.

Sigurvegari í Alenda úrtökumótinu varð Norðmaðurinn Jarand Ekelund Arnoy, en hann lék á samtals 11 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Alenda 2. stigs úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: