Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hlynur Bergsson – 23. október 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Hlynur Bergsson, GKG. Hlynur er fæddur 23. október 1998 og er því 21 árs afmæli í dag. Hlynur er Íslandsmeistari pilta í höggleik 2015. Hann tók m.a. þátt í Duke of York mótinu 2015 og landaði 25. sætinu, sem er góður árangur.

Árið 2016, varði Hlynur Íslandsmeistaratitil sinn í höggleik í piltaflokki og eins varð hann stigameistari í piltaflokki á Íslandsbankamótaröðinni.

Hlynur spilar nú í bandaríska háskólagolfinu með liði North Texas

Komast má á facebook síðu Hlyns hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið

Hlynur Bergsson

Hlynur Bergsson – 23. október 1998 (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Harvey Morrison Penick, f. 23. október 1904 – d. 2. apríl 1995; Chi Chi Rodriguez, 23. október 1935 (84 ára); Sigrun G Henriksen; 23. október 1961 (58 ára); James Evangelo Nitties, 23. október 1982 (37 ára); Michael Sim, 23. október 1984 (35 ára); Samúel og Friðrik Gunnarssynir, GÓ og GA, 23. október 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI!!! – Innilega til hamingju með daginn!!!); Óðinn Þór Ríkharðsson, 23. október 1997 (22 ára); Megan Khang, 23. október 1997 (22 ára – spilar á LPGA)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.