Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Brendon Todd (44/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.

Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Korn Ferry Tour Finals og fengu kortin sín þannig.

Í dag verður kynntur sá sem varð í 7. sæti á Korn Ferry Tour Finals en það er Brendon Todd, sem var með 505 stig.

Brendon Todd er ekki „nýr strákur“ á PGA Tour í fyllstu merkingu þess orðs heldur er hann aðeins að endurnýja spilaréttindi sín – Hann hefir verið á PGA Tour frá árinu 2009.

Brendon Todd fæddist 22. júlí 1985 í Pittsburgh, Pennsylvaníu og er því 34 ára. Todd byrjaði í golfi 5 ára þegar hann fór á völlinn með pabba sínum og eldri bræðrum. Hann útskrifaðist í viðskiptafræði frá University of Georgia 2007, þar sem hann spilaði með golfliðinu í 4 ár. Sama ár, 2007, gerðist Todd atvinnumaður í golfi.

Fyrst (árið 2008) spilaði Todd á Nationwide Tour (undanfara Korn Ferry Tour) og vann mót þegar á nýliðaári sínu, þ.e. Utah Championship og hann varð því 19. á peningalistanum og hlaut kortið sitt í fyrsta sinn á PGA Tour 2009. Honum gekk vægast sagt illa fyrsta ár sitt og náði aðeins niðurskurði 5 sinnum af 21 móti sem hann spilaði í.

Árið 2011 spilaði Todd því aftur á Nationwide Tour, fór í Q-school í lok árs, þar sem hann varð í 1. sæti og fékk því kortið sitt aftur á PGA Tour. Hann lauk 2012 keppnistímabilinu í 150. sæti á peningalistanum. Hann hélt því einhverjum spilarétti á PGA Tour 2013 en spilaði aðallega á Web.com Tour. Svona var Todd á milli mótaraða en eftir góðan árangur í Korn Ferry Finals er hann enn einu sinni aftur kominn á PGA Tour 2020.

Ýmsir punktar um Todd:

Todd segir að hápunkturinn í golfinu vera þegar hann fékk ása á sömu holu (nr. 17) hring eftir hring á móti Web.com Tour árið 2009 þ.e. Athens Regional Foundation Classic.

Hápunkturinn í lífi sínu utan golfsins er þegar hann fór í bungee jump þ.e. frjálst fall í teygjubandi 140 metra dýpi niður á við í Nýja-Sjálandi.

Uppáhaldsvefsíðurnar eru spin.com, espn.com, cbssports.com, georgiadogs.com og youtube.com.

Uppáhaldsíþróttalið Todd eru Georgia Bulldogs, Pittsburgh Steelers og Atlanta Braves.

Meðal uppáhaldssjónvarpsþátta Todd eru „Entourage“ og „Modern Family.“

Uppáhaldskvikmyndir Todd eru „Gladiator,“ „Rounders“ og „Wedding Crashers.“

Uppáhaldsmatur eru steikur, pízza og Five Guys’ hamborgarar.

Uppáhaldsíþróttamenn Todd eru Roger Federer, hvaða leikmaður Pittsburgh Steelers og þeir sem eru í fantasy ruðningsboltaliði hans.

Uppáhaldsborgir hans eru Las Vegas og Queenstown, í Nýja-Sjálandi.

Twitterfangið hans er: @brendontodd

Uppáhaldstækin hans eru iPad og Kindle

Uppáhaldsöppin eru spin.com, Twitter og ESPN scorecenter

Clif Bars og epli eru meðal þess sem eru í golfpoka hans sem nesti.

Hann er með Georgia Bulldog kylfu cover á einni kylfu sinni

Uppáhaldshollið hans myndi auk honum samanstanda af Jack Nicklaus, Michael Jordan og þjálfara Pittsburgh Steeler Mike Tomlin

Meðal þess sem hann á ógert en langar til að gera er að læra á seglbretti, fara í fallhlífarstökk, sigra í risamóti og klífa Mount Everest.

Uppáhaldsmálsháttur Todd er: „Ef þú gerir allt sem þú getur gert, þá er það alls sem þú getur gert,“ (ens. „If you do all you can do, that’s all you can do“ ) Jim Douglas
Leikfélagi Todd í Raleigh, Norður-Karólínu var Webb Simpson