Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sunna Víðisdóttir – 4. oktober 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Sunna Víðisdóttir en hún er fædd 4. október 1994 og á því 25 ára stórafmæli í dag!!! Sunna lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Elon, en er nú útskrifuð þaðan. Sunna varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2013. Hún er í sambúð með Viggó Kristjánssyni, handknattleiksmanni í Leipzig og þau eiga einn son.

Komast má á heimasíðu afmæliskylfings dagsins til þess að óska Sunnu til hamingju með daginn hér að neðan:

Sunna Víðisdóttir, GR og Elon. Mynd: Elon

Sunna Víðisdóttir (25 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið og litla, fallega soninn!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bonnie Bryant, 4. október 1943 (76 ára); Bjarney Guðmundsdóttir, 4. október 1953 (66 ára); Sherri Turner, 4. október 1956 (sigurvegari í LPGA meistaramótinu 1988 – 63 ára); Kolbrún Ólafsdóttir, 4. október 1962 (57 ára); Haukur Holm Hauksson, 4. október 1962 (57 ára); Patti Berendt, 4. október 1963 (56 ára); Helgi Jóhannsson, 4. október 1963 (56 ára); Jenny Sevil, (áströlsk), 4. október 1963 (56 ára); Lucas Parsons, 4. október 1969 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Arnar Jónsson, 4. október 1973 (46 ára); Gary Boyd, 4. október 1986 (33 ára); Jessica Yadloczky, 4. október 1988 (31 árs); Árni Gestsson, 4. október 1989 (30 ára)…… og ……. Kristin Snaefells Arnthorsdottir og Ari Sigvaldason

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is