Viktór Ingi Einarsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2019 | 06:15

Bandaríska háskólagolfið: Viktor Ingi & félagar sigruðu!!!

Viktor Ingi Einarsson, GR, og félagar í University of Missouri (MiZZOU) tóku þátt í Prairie Club Invitational.

Mótið fór fram á Dunes vellinum í Valentine, Nebraska, dagana 29.-30. september og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 42 frá 7 háskólum.

Viktor Ingi lauk keppni T-11 í einstaklingskeppni á 4. besta skori skóla síns, en hann lék á 5 yfir pari, 224 höggum (73 76 75).

MIZZOU lið Viktors Inga fagnaði sigri í mótinu!!!

Sjá má lokastöðuna á Prairie Club Invitational með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Viktors Inga og MIZZOU er 11. október í Tennessee.