Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagins: Perla Sól Sigurbrandsdóttir – 28. september 2019

Það er Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Perla Sól er fædd 28. september 2006 og á því 13 ára afmæli í dag. Hún er m.a. Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri telpna á Íslandsbankamótaröðinni 2018 og spilaði þá á „Mótaröð þeirra bestu) (þá Eimskipsmótaröðinni, út í Eyjum, þar sem hún var yngsti keppandinn eða 11 ára. Perla Sól sagði í viðtali það ár, að það hafi verið bróðir hennar, Dagbjartur, sem hafi dregið sig í golfið.

Nú í ár, 2019, aðeins 12 ára varð Perla Sól Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í stelpuflokki og sigraði í öllum mótum Íslandsbankamótaraðarinnar. Jafnframt varð hún T-17 í Íslandsmótinu í höggleik í kvennaflokki – aðeins 12 ára!!! Stórglæsilegur árangur Perlu Sól!!!

Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret „Wiffi“ Smith 28. september 1936 (83 ára); Ragnhildur Jónsdóttir, GK, 28. september 1940 (79 ára); Giuseppe Calì, 28. september 1952 (67 ára); Sigurjón Harðarson, 28. september 1952 (67 ára); Gustavo Rojas, 28. september 1967 (52 ára); Se Ri Pak, 28. september 1977 (42 árs); Kenneth Ferrie, 28. september 1978 (41 árs); Jean-Babtiste Gonnet, 28. september 1982 (37 ára);  Jane Turner, 28. september 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI) – skosk spilar á LET Access; ….. og ….. Óliver Leó Óliversson og Sandy Crutchfield Daly

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Aðalmyndagluggi: Afmæliskylfingur Golf1.is 28. september 2018, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR. Mynd: GSÍ