Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2019 | 16:45

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn & félagar luku keppni í 16. sæti

Birgir Björn Magnússon, GK og félagar í Southern Illinois University, (SIUSaloukis) tóku þátt í Graeme McDowell Invitational, sem fór fram í Greystone Golf & Country Club í Birmingham, Alabama, dagana  23.-24. september og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 100 frá 19 háskólum.

Birgir Björn lauk keppni á samtals 20 yfir pari, 236 höggum (75 82 79) og varð T-85 í einstaklingskeppninni.

Vikar Jónasson, sem einnig keppir fyrir Southern Illinois var ekki með í þessari viku.

Lið Birgis Björns, Southern Illinois er í hafnaði í 16. sæti liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Graeme McDowell Invitational með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót karlagolfliðs SIUSalukis er mánudaginn, 30. september nk.