Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Henrik Norlander (17/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.

Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.

Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.

Í dag verður kynntur sá kylfingur, sem varð í 9. sæti eftir reglulega tímabilið, Henrik Norlander, sem var með 1327 stig á stigalista Korn Ferry Tour.

Henrik Norlander fæddist 25. mars 1987 Danderyd, Stokkhólmi og er því 32 ára. Hann á m.a. sama afmælisdag og Guðrún Brá „okkar“ Björgvinsdóttir, Guðni Oddur Jónsson, GS og Scott Stallings, sem einnig leikur á PGA Tour.

Hann er fremur hávaxinn 1,93 m á hæð og 95 kg.

Norlander spilaði í bandaríska háskólanum með liði Augusta State University í Georgia, þaðan sem hann útskrifaðist með gráðu í viðskiptafræði (Business Adminstration, 2011).

Ýmsar staðreyndir um Norlander:

Uppáhaldsgolfminning hans er þegar pabbi hans fór með hann í ferðalag til St. Andrews í Skotlandi þegar hann var strákur.

Norlander fylgist með Detroit Red Wings í liðaíþróttum en í einstaklings hefir hann gaman af tennisleikaranum Roger Federer.

Hægt er að „followa“ Norlander á Twitter sbr. @HenkeNorlander.

Í draumaholli Norlander myndu vera…. hann sjálfur, Federer, Pete Sampras og Johnny Cash.