Saga Traustadóttir, GR
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2019 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Saga best og Andrea næstbest í liði Colorado State!

Saga Traustadóttir GR og Andrea Bergsdóttir GKG taka þátt í Col Wollenberg’s Ram Classic, með liði sínu Colorado State University.

Andrea Bergsdóttir

Mótið fer fram í Ptarmigan Country Club í Fort Collins, Colorado dagana 23.-24. september og lýkur í dag.

Þátttakendur eru 75 frá 13 háskólum.

Eftir 1. dag er Saga á besta skori Colorado State T-12 í einstaklingskeppninni eftir að hafa spilað á samtals 148 höggum (75 73).

Andrea er á næstbesta skori Colorado State þ.e. er T-18 í einstaklingskeppninni en hún lék á samtals 150 höggum (76 74).

Lið Colorado State er í 2. sæti í liðakeppninni – Glæsileg frammistaða!!!

Sjá má stöðuna á Col Wollenberg’s Ram Classic með því að SMELLA HÉR: