Úrtökumót f. Evróputúrinn: Dagbjartur T-21 e. 3. dag – Haraldur T-2 e. 2. dag
GR-ingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Haraldur Franklín Magnús spila báðir á úrtökumótum fyrir Evróputúrinn í gær.
Dagbjartur lék 3. hring sinn á Stoke by Nayland úrtökumótinu, í Englandi, á 68 glæsihöggum og er samtals búinn að spila á 1 undir pari, 212 höggum (75 69 68) eftir 3. dag.
Á 3. hring sínum fékk Dagbjartur 4 fugla og 1 skolla; lék því á 3 undir pari . Við þetta færðist hann enn upp skortöfluna og er nú T-21 þ.e. deilir 21. sætinu með 3 öðrum kylfingum.
Þátttakendur eru 93 í mótinu og 20% eða um 18 fari upp á 2. stig úrtökumótsins.
Nú er bara að vona að Dagbjartur spili áfram svona lokahringinn og komist á 2. stigið!!!
Sjá má stöðuna á úrtökumóti Dagbjarts með því að SMELLA HÉR:
_________________________________________________________________
Haraldur Franklín Magnús lék 2. hring sinn á Ebreichsdorf úrtökumótinu í Austurríki.
Hann lék á 6 undir pari, 66 höggum og er T-2 eftir 2. dag. Frábært!!! Á hringnum stórglæsilega í dag fékk Haraldur Franklín 7 fugla og 1 skolla.
Samtals er Haraldur Franklín búinn að spila á 10 undir pari, 134 höggum (68 66).
Þátttakendur eru 100 í mótinu og má búast við að 20 efstu nái inná 2. stigið. Miðað við þetta er Haraldur í góðum málum og vonandi að framhald verði á.
Sjá má stöðuna á úrtökumóti Haraldar Franklíns í Ebreichsdorf með því að SMELLA HÉR:
Í aðalmyndaglugga: Dagbjartur Sigurbrandsson t.v.; Haraldur Franklín Magnús t.h. Mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
