Ragnheiður Jónsdóttir | september. 19. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Rhein Gibson (13/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.

Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.

Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.

Í dag verður kynntur sá kylfingur, sem varð í 13. sæti eftir reglulega tímabilið, Rhein Gibson, sem var með 1142 stig á stigalista Korn Ferry Tour.

Rhein Gibson fæddist 1. febrúar 1986 í Lismore, Ástralíu.

Hann er fremur hávaxinn 1,88 m á hæð og 82 kg.

Gibson var fjórfaldur NAIA All-American í Oklahoma Christian University, þar sem hann lék í bandaríska háskóla- golfinu.

Þann 12. maí 2012 spilaði Gibson hring upp á 16 undir pari, 55 högg, í River Oaks golfklúbbnumí Edmond, Oklahoma og komst þar með í heimsmetabók Guinness.

Gibson náði niðurskurði á Opna breska 2014, en á 3. hring spilaði hann með Tiger Woods og Jordan Spieth. Hann varð í 72. sæti í þessu fyrsta risamóti sínu.

Í desember 2014 varð hann í 4. sæti eftir á úrtökumóti fyrirl Web.com Tour (undanfara Korn Ferry Tour) og ávann sér þannig keppnisrétt á þeirri mótaröð keppnistímabilið 2014-2015. Árið 2015 varð hann í 33. sæti eftir reglulga tímabið og hlaut í 1. sinn keppnisrétt á PGA Tour keppnistímabilið 2015-2016.

Gibson varð í 199. sæti á FedEx Cup og í 30. sæti á peningalista Web.com Tour, en einn af hápunktum þessa fyrsta PGA Tour keppnistímabils hans var hann hann fékk albatross á par-5 18. brautinni á Barracuda Championship, sem var 8 stiga virði skv. Stableford kerfinu. ÞFyrir þetta högg vann hann  $50,000 til góðgerðarmála í Nevada (þar sem mótið fór fram og eins $50,000 fyrir góðgerðarmál að eigin vali Gibson. Gibson valdi Maximum Chances, sem er góðgerðarstofnun stofnuð af landa hans, Ástralanum Greg Chalmers, sem rannsakar einhverfu og ver fjármunum til einhverfra.

Í janúar 2018 kom upp leiðindaatvik á The Bahamas Great Abaco Classic á Web.cm Tour þar sem Gibson náðist á mynd þar sem hann henti pútters „headcoverinu“ í kylfusvein sinn Brandon Davis eftir að Davis hafði náði í bolta í torfæru … sem kostaði Gibson 1 högg í víti.

Helstu sigrar Gibson eru eftirfarandi:

Sem áhugamaður:

2008 Oklahoma State Amateur

Sem atvinnumaður:

Á Web.com Tour:  19 Jun 2019 BMW Charity Pro-Am −21 (66-64-63=193) átti 3 högg á Michael Miller

Á NGA Tour:  2013 Avoca Classic

Aðrir sigrar:
2010 Oklahoma Open
2013 Arkansas Open