Ragnheiður Jónsdóttir | september. 18. 2019 | 22:00

Úrtökumót f. Evróputúrinn: Dagbjartur á 69 2. dag – Haraldur í 11. sæti e. 1. dag

GR-ingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Haraldur Franklín Magnús léku báðir á úrtökumótum fyrir Evróputúrinn í gær.

Dagbjartur lék 2. hring sinn á Stoke by Nayland úrtökumótinu, í Englandi, á 69 glæsihöggum og er samtals á 2 yfir pari, 144 höggum (75 69) eftir 2. dag.

Á 2. hring sínum fékk Dagbjartur 1 örn, 3 fugla og 3 skolla. Við þetta færðist hann upp skortöfluna og er nú T-37 þ.e. deilir 37. sætinu með 12 öðrum kylfingum.

Þátttakendur eru 93 í mótinu og 20% eða um 18 fari upp á 2. stig úrtökumótsins.

Það er því á brattann að sækja fyrir Dagbjart, en ekkert útilokað haldi hann glæsispilamennskunni frá 2. hring áfram!!!

Sjá má stöðuna á úrtökumóti Dagbjarts með því að SMELLA HÉR: 

_________________________________________________________________

Haraldur Franklín Magnús lék 1. hring sinn á Ebreichsdorf úrtökumótinu í Austurríki.

Hann lék á 4 undir pari, 68 höggum og er í 11. sæti eftir 1. dag. Á hringnum fékk Haraldur Franklín 1 örn, 4 fugla og 2 skolla.

Þátttakendur eru 100 í mótinu og má búast við að 20 efstu nái inná 2. stigið. Miðað við þetta er Haraldur í góðum málum og vonandi að framhald verði á.

Stórglæsilegt hjá Haraldi Franklín!!!

Sjá má stöðuna á úrtökumóti Haraldar Franklíns í Ebreichsdorf með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Dagbjartur Sigurbrandsson t.v.; Haraldur Franklín Magnús t.h. Mynd: GSÍ