Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2019 | 07:15

LET Access: Guðrún Brá T-24 e. 1. dag!

Berglind Björnsdóttir, GR og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK taka þátt í móti vikunnar á LET Access mótaröðinni, WPGA International Challenge 2019.

Mótið hófst í gær og stendur dagana 12.-14. september.

Mótsstaður er Stoke by Nayland Hotel Golf & Spa golfstaðurinn í Stoke By Nayland, í Englandi.

Guðrún Brá átti glæsilegan 1. hring upp á 1 yfir pari, 73 högg og er T-24 þ.e. deilir 24. sætinu með 15 öðrum keppendum.

Berglindi gekk ekki alveg eins vel; lék á 9 yfir pari, 81 höggi og er í 95. sæti.

Skorið verður niður eftir 2. hring í  dag og sem stendur miðaðst niðurskurður við 3 yfir pari eða betra.

Fylgjast má með gengi íslensku stúlknanna á WPGA International Challenge 2019 með því að SMELLA HÉR: