Afmæliskylfingar dagsins: Bert Yancey og Jeff Barlow – 6. ágúst 2019
Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Bert Yancey og Jeff Barlow.
Bert Yancey fæddist í Chipley, Flórída 6. ágúst 1938 og hefði orðið 81 árs í dag, en hann lést 26. ágúst 1994, nýorðinn 56 ára. Yancy þjáðist af manío-depressívu alla ævi, en lést um aldur fram úr hjartaslagi í golfvellinum. Hann sigraði m.a. 7 sinnum á PGA Tour. Hann lét eftir sig eiginkonu sína Cheryl og dóttur þeirra Andreu, en auk þess átti Bert 4 börn úr fyrra hjónabandi, dótturina Tracy og 3 syni: Charles, Scott og Jeffrey, og tvö barnabörn.
Jeff Barlow hins vegar fæddist 6. ágúst 1968 og á því 51 árs afmæli í dag. Barlow var m.a. í bandaríska háskólagolfinu og lék með liði University of Florida en margir þekktir kylfingar voru í liðinu, m.a. Chris di Marco og e.t.v. minna þekktir kylfingar eins og Pat Bates og Dudley Hart. Barlow lék síðan nokkur mót á PGA Tour.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Doug Ford, (f. 6. ágúst 1922 – d. 15. maí 2018); Pétur Steinar Jóhannesson, 6. ágúst 1942 (76 ára); Tom Inskeep, 6. ágúst 1955 (64 ára) – lék á kandadíska PGA; Indíana Fanndal, 6. ágúst 1960 (59 ára); Michel Besancenay, 6. ágúst 1962 (57 ára); Lauren Cowan, 6. ágúst 1964 (55 ára); William Fred Mayfair, 6. ágúst 1966 (53 ára) – lék á bandaríska PGA Tour; Karlin Beck, 6. ágúst 1987 (32 ára) …… og …… Morten Hagen
Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
