Guðlaugur Gíslason
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason – 1. ágúst 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Guðlaugur Gíslason, fv. alþingismaður og forvígismaður margs góðs í Vestmannaeyjum Guðlaugur var og framúrskarandi kylfingur. Guðlaugur var fæddur 1. ágúst 1908 og hefði því orðið 111 ára í dag. Hann lést 6. mars 1992. Guðlaugur var forystumaður Golfklúbbs Vestmannaeyja um árabil, sem í ár (4. desember) fagnar 81 ára afmæli sínu. Eins var Guðlaugur einn aðalhvatamaður að stofnun Fiska- og Náttúrugripasafns í Vestmannaeyjum, sem í dag heitir Sæheimar. Sæheimar voru í fréttum í dag því þau sorgartíðindi bárust að Tóti lundi hefði látist í fyrra, en Tóti var lifandi lundi sem hafður var til sýnis í safninu sem Guðlaugur hafði forystu um að byggt yrði. Guðlaugur er faðir Jakobínu Guðlaugsdóttir og Jón Hauks Guðlaugssonar, kylfinga með meiru.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:; Lloyd Mangrum, f. 1. ágúst 1914 – d. 17. nóvember 1973; Baldur Baldursson, 1. ágúst 1951 (68 ára); Mússa Faulk, 1. ágúst 1968 (51 árs); Jón Ingi Jóhannesson, 1. ágúst 1970 (49 ára); Margrét Eir, 1. ágúst 1972 (47 ára); Guðmundur Liljar Pálsson, 1. ágúst 1973 (46 ára); Nökkvi Gunnarsson, NK, 1. ágúst 1976 (43 ára); Thorvaldsen Bar, 1. ágúst 1977 (42 ára); Ágúst Bernhardsson Linn, 1. ágúst 1979 (40 ára STÓRAFMÆLI – Innilega til hamingju!!!); Prjóna Brjálæði, 1. ágúst 1981 (38 ára); Bergur Ve, 1. ágúst 1983 (36 ára); Kristoffer Broberg, 1. ágúst 1986 (33 árs); Lucas Lee, 1. ágúst 1987 (32 ára); Alexander Lévy, 1. ágúst 1990 (29 ára); Aðalbjörgönnur Aðalbjörg, 1. ágúst 1997 (22 ára) …… og ……. Svava Frá Strandbergi

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið!

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!