Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2019 | 22:00

WGC: Nýjasta geðluðrukast Garcia

Eftir slæmt dræv á 16. á TPC Southwind, þar sem FedEx St. Jude Invitational fór fram tók spænski kylfingurinn Sergio Garcia báðum höndum um dræverinn sinn og sló hann í grasið og tók upp risa tofusnepil.

Myndskeið af nýjasta geðluðrukasti Garcia hefir birtst á Twitter – Sjá með því að SMELLA HÉR:

Mótmælaöskur áhorfenda virtust engin áhrif hafa á hann.

Og ótrúlegt en satt; ekkert verður gert til þess að beita Garcia agaviðurlögum.

Hann virðist geta gert allt og samt sloppið við að vera vikið af Evróputúrnum eða PGA Tour í refsingarskyni, sem eru viðurlögin við svona slælegri hegðun.

The Daily Telegraph vitnaði í ónafngreindan kylfing á PGA Tour, sem sagði: „Við (strákarnir á túrnum) erum farnir að velta því fyrir okkur hvað Sergio þurfi eiginlega að gera til þess að vera rekinn í nokkrar vikur af túrnum.“

Líklega verður Garcia sektaður en fjárhæðirnar breyta engu fyrir milljónamæring eins og Garcia.

Kannski Garcia ætti að taka upp nálgun Walter Hagen, sem margir kylfingar mættu einnig hafa hugfast þegar þeir spila golfhring: “be sure to smell the flowers along the way,“ þ.e. að njóta hringsins en ekki stökkva upp á nef sér við allt sem út af ber.