Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 20. 2019 | 08:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir og Guðmundur Ágúst náðu ekki niðurskurði

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR voru báðir á meðal keppenda á Áskorendamótaröð Evrópu í þessari viku.

Mótið, sem þeir kepptu á, ber heitið Euram Bank Open og er keppt í GC Adamstal, í Ramsau, Austurríki og stendur 18.-21. júlí.

Hvorugur þeirra náði niðurskurði, sem var miðaður við samtals 1 undir pari eða betra.

Birgir Leifur lék á samtals 1 yfir pari, 141 höggi (71 70) og var aðeins 2 höggum frá því að ná niðurskurði.

Guðmundur Ágúst lék á samtals  5 yfir pari, 145 höggum (68 77). Guðmundur var enn í góðum málum eftir fyrri 9 á seinni keppnishring; búinn að fá 2 skolla og þurfti aðeins að herða sig til (hefði aðeins þurft 1 fugl til að ná niðurskurði) en í stað þess fór allt úrskeiðis því Guðmundur Ágúst fékk 3 skolla og 1 tvöfaldan skolla á seinni 9 og spilaði því seinni hringinn á samtals 7 yfir pari, sem var 9 högga sveifla frá fyrri degi!

Sjá má stöðuna á Euram Bank Open með því að SMELLA HÉR: